Hallgerðargata

Hallgerðargata í undirbúning

Búseti byggir við Hallgerðargötu 20 þriggja hæða lyftuhús með 42 íbúðum. Um er að ræða tvískipta byggingu með bílakjallara. Íbúðirnar verða fjölbreyttar að stærð og gerð, tveggja til fimm herbergja, allt frá 60 m² til rúmlega 140 m² að stærð, búnar öllum helstu nútímaþægindum. Alls 37 íbúðir verða fyrir félagsmenn Búseta, fjórtán 2ja herbergja, tólf 3ja herbergja, níu 4ra herbergja og tvær 5 herbergja. Fimm íbúðir verða fyrir Brynju leigufélag ÖBÍ. Fyrir á Búseti í hverfinu fjögurra íbúða hús við Laugarnesveg.

Við hönnun íbúðanna er kappkostað við að nýta hvern fermetra vel og íbúðirnar því sérstaklega vel skipulagðar. Byggingarnar eru í samræmi við stefnu Búseta um vönduð og endingargóð húsakynni þar sem fólki líður vel. Lögð verður áhersla á stílhreint efnisval með tilliti til umhverfis- og hagkvæmnisjónarmiða er varðar rekstur og viðhald. Vandað er til verksins frá upphafi til að huga að hringrásarkerfinu og auka hagkvæmni.

Húsin verða staðsteypt og klædd að utan, gluggar og svalahurðir íbúða verða úr áli og timbri. Allt parket og innréttingar í íbúðunum verða umhverfisvottuð og endingargóð. Hugað verður að hljóðvist bæði innanhúss og á útisvæði.

Kirkjusandur er í mikilli uppbyggingu og hluti af eflingu strandlínu höfuðborgarinnar. Almenningstorg, leikskóli, verslun og ýmis þjónusta verður hluti af uppbyggingu hverfisins. Bílastæði verða flest neðanjarðar og áhersla lögð á góða stíga.

Handhægt verður fyrir íbúa við Hallgerðargötu að nýta sér almenningssamgöngur þar sem ein af stærstu skiptistöðvum Strætó, Hlemmur, er skammt frá. Að auki auðvelda stofnæðar eins og Sæbraut og Kringlumýrarbraut fólki við að komast leiða sinna.